Fréttir

Náttúran, auðlindirnar og nýja stjórnarskráin – Hvaða áhrif mun ný stjórnarskrá hafa á auðlindanýtingu og náttúruvernd? - 16.5.2012

Í erindi sínu á fundi stjórnarskrárfélagsins fjallaði Kristinn Einarsson, yfirverkefnistjóri, meðal annars um hlutverk Orkustofnunar og þær breytingar sem hafa orðið og eru fyrirséðar,  þá setti hann þær í samhengi við það sem segir um auðlindamálin í tillögu að nýrri stjórnarskrá sem stjórnlagaráð hefur lagt fram.

Lesa meira
 

Orkustofnun svarar ásökunum Landverndar - 11.5.2012

Í kjölfar þess að formaður Landverndar hefur ásakað Orkustofnun um að starfsmaður stofnunarinnar, Skúli Thoroddsen, hafi verið vanhæfur til að undirrita umsögn stofnunarinnar um þingsályktunartillögu um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, vill Orkustofnun koma eftirfarandi á framfæri.

Lesa meira
 

Markmiðum um sjálfbæra uppbyggingu raforkuframleiðslunnar stefnt í hættu - 8.5.2012

Það er mat Orkustofnunar að með þessu verði markmiðum um sjálfbæra uppbyggingu raforkuframleiðslunnar stefnt í hættu, segir í umsögn Orkustofnunar um tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða sem nú liggur fyrir Alþingi. 

 

Lesa meira
 

Orkusetur opnar fræðsluforrit um virkjanir - 7.5.2012

Orkusetur hefur nú smíðað gagnvirkt netkennsluforrit um virkjanir sem hafa yfir 10 MW af uppsettu afli. Þar má finna yfirlitskort og helstu tölfræðiupplýsingar um vatnsafls og jarðvarmavirkjanir á Íslandi. Forritið er afar einfalt í notkun og einungis þarf að nota tölvumúsina við lausn verkefna.

Lesa meira
 

Orkustofnun, Rannís og  stjórnsýslustofnanir átta annarra Evrópulanda hljóta styrk að upphæð tæpum 2 milljónum evra - 27.4.2012

Orkustofnun, Rannís og  stjórnsýslustofnanir átta annarra Evrópulanda hljóta styrk að upphæð tæpum 2 milljónum evra úr 7. Rammaáætlun Evrópusambandsins í þágu jarðhitaþróunar í Evrópu. Orkustofnun sem fer með stjórn verkefnisins fær um 600.000 evrur til verkefnisins. 

 

Lesa meira
 

Uppgjöri tekjumarka Landsnets fyrir árin 2006-2010 er nú lokið - 27.4.2012

Orkustofnun hefur nú lokið við uppgjör tekjumarka Landsnets fyrir árin 2006-2010. Samkvæmt raforkulögum, nr. 65/2003, skal Orkustofnun setja flutningsfyrirtækinu tekjumörk, en tekjumörk eru þær hámarkstekjur sem fyrirtækinu er leyfilegt að innheimta með gjaldskrá sinni og eru í aðalatriðum ákveðin út frá rekstrarkostnaði, arðsemi og afskriftum. Lesa meira
 

Fundur um orkumál heimilanna - 26.4.2012

Orkusetur og Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands boða til fundar um orkumál heimila föstudaginn 27. apríl 2012, kl. 13-15:30 í Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík. Lesa meira
 

Eldsneytisspá 2012-2050 - 24.4.2012

Eldsneytishópur Orkuspárnefndar hefur gefið út nýja eldsneytisspá sem nær allt til ársins 2050.

Lesa meira
 

Afstaða til útgáfu sérleyfa mun liggja fyrir í síðasta lagi í nóvember 2012 - 23.4.2012

Orkustofnun vinnur að mati á umsóknum sem bárust í öðru útboði á Drekasvæðinu. Lesa meira
 

Framkvæmdir hefjast við nýja fiskeldisstöð við Reykjanesvirkjun - 20.4.2012

HS Orka útvegar fiskeldinu rafmagn og heitan hreinan sjó, sem nú rennur ónýttur til sjávar.

senegal_flura_003

Lesa meira
 

Fundur um orkumál heimila - 18.4.2012

Orkusetur og Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands boða til fundar um orkumál heimila föstudaginn 27. apríl 2012, kl. 13-15:30 í Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík.

Lesa meira
 

A Power Rush - 18.4.2012

Orkumálastjóri birti nýlega grein í Public Service Review þar sem fjallað er um þróun endurnýjanlegrar orku og hagvöxt á Íslandi

Lesa meira
 

Orkustofnun bárust þrjár umsóknir um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu - 2.4.2012

Orkustofnun fer með leyfisveitingavald samkvæmt lögum nr.13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis. Annað útboð vegna sérleyfa á Drekasvæðinu hófst þann 3. október 2011 og lauk í dag, 2. apríl. 


Eftirtalin fyrirtæki sóttu um sérleyfi:

·       Eykon, óskráð félag.

·       Faroe Petroleum og Íslenskt kolvetni ehf.

·       Valiant Petroleum og Kolvetni ehf.


Lesa meira
 

Ársfundur Orkustofnunar var haldinn í Hörpu síðastliðinn föstudag - 2.4.2012

Iðnaðarráðherra og GuðniIðnaðarráðherra, Oddný G. Harðardóttir og Orkumálastjóri, Guðni A. Jóhannesson fluttu ávarp í upphafi fundar. Áhugaverð erindi voru flutt af Starfsfólki Orkustofnunar og Bjarna Bjarnasyni forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. 

Lesa meira
 

Orkustofnun boðar til opins blaðamannafundar í dag, mánudaginn 2. apríl, klukkan 16:30   - 2.4.2012

Niðurstaða útboðs sérleyfa til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Dekasvæðinu verður kynnt

Lesa meira
 

Stofnun ríkisolíufélags - 23.3.2012

Orkustofnun fer með leyfisveitingavald samkvæmt lögum nr.13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis (kolvetnislögunum). Í því útboðsferli sem nú stendur yfir vegna sérleyfa til rannsókna og vinnslu kolvetnis á norðurhluta Dreksvæðisins og lýkur þann 2. apríl nk. hafa skapast væntingar um olíuvinnslu á svæðinu og umræðan um ríkisolíufélag fengið byr undir vængi. Orkustofnun vill af því tilefni reifa stuttlega stofnun slíks félags út frá gildandi regluverki og áherslum stofnunarinnar í því sambandi.

Lesa meira
 

Ráðstefna um varmadælur - 20.3.2012

Orkustofnun flytur erindi um haghvæmni varmadælna á ráðstefnu lagnafélagsins um varmadælur fimmtudaginn 22. mars í Lagnakerfamiðstöð Íslands.

Lesa meira
 

Ársfundur Orkustofnunar 2012 - 15.3.2012

Ársfundur Orkustofnunar verður haldinn föstudaginn 30. mars kl. 14:00 – 17:00 í

tónlistar – og ráðstefnuhúsinu Hörpu við Austurbakka í salnum Rímu.


Áhugasömum er bent á að skrá þátttöku

Lesa meira
 

Orkustofnun veitir Landsvirkjun rannsóknarleyfi á vatnasviði við Hágöngulón á Holtamannaafrétti - 14.3.2012

Leyfið tekur til rannsókna við að kanna hagkvæmni þess að nýta fallorku úr Hágöngulóni á Holtamannafrétti til vatnsaflsvirkjunar. Lesa meira
 

Orkumálastjóri flytur erindi á ráðstefnu um endurnýjanlega orku í Japan - 12.3.2012

Í erindi sínu fjallaði Guðni um jarðhitanýtingu á Íslandi, stöðu orkumála og hvernig Íslendingar hafa verið að nýta jarðhita í gegnum árin.


Lesa meira
 

Nýjar rannsóknir á Drekasvæðinu sýna ummerki um olíu frá Júratímabilinu á hafsbotni og staðfesta tilvist jarðlaga frá miðlífsöld - 23.2.2012

Olíuleitarfélögin TGS og Volcanic Basin Petroleum Research (VBPR) söfnuðu sýnum úr 1000 m háum hamri á hafsbotni á Drekasvæðinu í september sl. í samræmi við leitarleyfi sem Orkustofnun veitti TGS í sama mánuði. Meira en 200 kg af grjóti og seti náðust á tólf sýnatökustöðum.

Lesa meira
 

Raforkuhópur Orkuspárnefndar hefur tekið saman helstu tölur fyrir árið 2011 - 15.2.2012

Raforkuvinnsla jókst um 0,9% á milli ára og almenn notkun er farin að aukast eftir samdrátt síðustu ára. Í samantektinni má einnig sjá að aukin raforkunotkun helst í hendur við hagvöxt í landinu og síðustu raforkuspár hafa staðist vel.
Lesa meira
 

Ný gjaldskrá yfir verð á heitu vatni - 7.2.2012

Orkustofnun tekur reglulega saman verð á heitu vatni frá hitaveitum með reglugerð og birtir.
Lesa meira
 

Orkustofnun gefur út fyrsta leyfið samkvæmt nýlega breyttum vatnalögum - 2.2.2012

 Orkustofnun veitir vegagerðinni leyfi til breytinga á Svaðbælisá ásamt tilheyrandi varnargörðum

Lesa meira
 

Norska olíumálastofnunin (NPD) kynnti áhugaverðar niðurstöður rannsókna sem fram fóru síðastliðið sumar á Drekasvæðinu - 30.1.2012

Áhugaverðar niðurstöður norsku olíumálastofnunarinnar og Háskólans í Bergen voru kynntar á vetrarmóti norrænna jarðfræðinga sem fram fór í janúar.

Lesa meira
 

Orkustofnun veitti, þann 23. janúar 2012, Vatnsvirkjun í Skógargerði ehf, leyfi til að reisa og reka allt að 145 kW vatnsaflsvirkjun í Rangá við Skógargerði - 23.1.2012

Orkustofnun hefur, með vísan til 4.  og 5. grein raforkulaga nr. 65/2003, með síðari breytingum og 4. og 5 gr. reglugerðar um framkvæmd raforkulaga, nr. 1040/2005, með síðari breytingum, veitt vatnsvirkjun í Skógargerði ehf leyfir til að reisa og reka allt að 145 kW vatnsaflsvirkjun í Rangá við Skógargerði.


Lesa meira
 

Orkusjóður auglýsir rannsóknarstyrki 2012 - 19.1.2012

Við úthlutun styrkja verður meðal annars sérstök áhersla lögð á hagkvæma orkunýtingu og orkusparnað, innlenda orkugjafa, vistvænt eldsneyti og sparnað jarðefnaeldsneytis. Umsóknar frestur er til 1.mars 2012

Lesa meira
 

Sérfræðingur – á sviði raforkueftirlits - 19.1.2012

Orkustofnun auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings við eftirlit með framkvæmd raforkulaga.

Lesa meira
 
Sigurdur-tekur-vid-verdlaunum

Orkusetur hlýtur viðurkenningu fyrir gagnvirkar reiknivélar á netinu - 19.1.2012

Orkusetur hlaut á dögunum alþjóðlega viðurkenningu Energy Globe fyrir gagnvirkar reiknivélar sem aðstoða neytendur við að draga úr umhverfisáhrifum samgangna.

Lesa meira
 

Orkustofnun kynnti dýptarmælingar og efnistöku á Vetrarmóti norrænna jarðfræðinga í Hörpu.  - 17.1.2012

Orkustofnun í samstarfi við Sjómælingar Íslands kynnti á dögunum dýptarmælingar og efnistöku í Hvalfirði og Kollafirði.

Lesa meira
 

Orkustofnun tekur þátt í Vetrarmóti norrænna jarðfræðinga í Hörpu - 9.1.2012

Orkustofnun tekur þátt í Vetrarmóti norrænna jarðfræðinga sem fram fer í Hörpu dagana 9. til 12. janúar. Fyrirlestrar um jarðfræði Jan Mayen hryggjarins verða á mánudag og fimmtudag.

Lesa meira
 

Ný gjaldskrá yfir verð á heitu vatni - 5.1.2012

Orkustofnun tekur reglulega saman verð á heitu vatni frá hitaveitum með reglugerð og birtir hér á vef Orkustofnunar.

Lesa meira
 

Orkustofnun veitir Landsneti hf. leyfi til að reisa og reka flutningsvirki milli Búðarhálsvirkjunar og Hrauneyjafosslínu 1 - 5.1.2012

Orkustofnun veitti, þann 22. desember 2011, Landsneti hf. leyfi til að reisa og reka flutningsvirki milli Búðarhálsvirkjunar og Hrauneyjafosslínu 1


Lesa meira
 

Orkustofnun veitir Landsneti hf. leyfi til að reisa og reka flutningsvirki milli Fitja og Helguvíkur   - 5.1.2012

Orkustofnun veitti þann, 15. desember 2011, Landsneti hf. leyfi til að reisa og reka flutningsvirki milli Fitja og Helguvíkur.

Lesa meira
 

Iðnaðarráðuneytið hefur staðfest niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar - 2.1.2012

Borholur á Hellisheiði

Í samræmi við 6. gr. laga nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar og fjárlög fyrir árið 2012 hefur iðnaðarráðherra ákveðið fjárhæð niðurgreiðslna sem taka munu gildi frá og með 1. janúar 2012.

Lesa meira
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica